Jæja kannski gott að gera smá samantekt.
3ja vika lokaritgerðarinnar var að hefjast og ég er kominn með 3.092 orð. Fyrir ykkur sem vitið ekki um hvað ég er að skrifa þá er rannsóknarspurningin mín: "Hvað er Rotoscope?"
Ég er ekki alveg tilbúinn í að fara að gubba út annari ritgerð hérna á bloggið en ég kem sennilega til með að setja hana hingað inn þegar að ég hef fengið fyrir hana einkunn.
Ég fór með Rut í óvissuferð um helgina, réttara sagt var ég fylgdarsveinn Rutar í óvissuferð sem að fyrirtækið sem að hún vinnur hjá, N1, fór í.
Við byrjuðum á því að hitta fólkið sem ætlaði með niðri í gamla Bílanaust (sem augljóslega er N1 í dag), og fórum þaðan um hálf sex leitið í átt að Dalvík. Við stoppuðum hinsvegar á Árskógsandi í bjórverksmiðju sem framleiðir besta bjór veraldar sem heitir Kaldi. En þar sem að undirritaður er í keppni við sunnlenskan frænda sinn og overall lífstílsbreytingu, var hann ekki að drekka, en fékk þó glas fyrir ómakið. Við stoppuðum í c.a. klukkutíma í Kalda verksmiðjunni og héldum þaðan niður á höfnina á Árskógsandi þar sem beið okkar ferjan til Hríseyjar. Þetta var u.þ.b. klukkan 7 um kvöldið og fórum við og fengum að borða á veitingahúsinu Brekku í Hrísey. Maturinn var mjög góður, reyndar af dálítið skornum skammti, en við fengum samt ábót. Við vorum á Brekku þar sem að fólk spjallaði og fékk sér meira að drekka (fyrir utan einn vitleysing í hópnum) til að verða 11 og héldum þá aftur niður á bryggjuna. Ég ákvað nú, fyrst að ég var í Hrísey á annað borð, að senda vinkonu minni og fyrrverandi kærustu félagamíns, Unni sms til að athuga hvort að hún væri nú á heimaslóðum og hvort að hún gæti nú ekki hitt á okkur áður en að við myndum láta okkur hverfa. Hún rétt náði okkur áður en við héldum heim á leið og spjallaði aðeins við okkur á leiðinni niður á bryggju. Þegar heim var komið (eða hjá verslun sem einu sinni hét Bílanaust) þá skutlaði ég Rut, Guðný og Hemma heim til þeirra síðarnefndu þar sem að þau voru til c.a. 3 um nóttina. Ég sat heima með Hlölla pizzabát og horfði á restina af seríu 2 af Prison Break þangað til að Rut bað mig um að ná í sig og það er eiginlega öll sólarsagan.
Jú annars, ég fékk sms frá manni sem var búinn að grátbiðja mig um að koma og vinna hjá sér í allt sumar og í vetur um að hann "þyrfti ekki á mér að halda". Ég hef heyrt ýmsar sögur af þessum manni, og þá aðallega frá fólki sem að hefur unnið undir sama þaki eða hjá sama fyrirtæki og þær eru ekki alltof gefandi.
En jæja, ég kalla þetta gott að sinni.
20071001
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Elska þig ásin min:)
:*
Farðu nú að blogga eithvað ástin min:)
Skrifa ummæli