20070923

Næturvaktin, Vörutorg og Samsæri

Eftir að hafa verið fjarverandi frá bloggi, aðallega vegna áhugaleysis um annað en tölvuleikjaspilun hef ég ákveðið að reyna smá aftur.

Ég var að horfa á Næturvaktina, loksins kom eitthvað sem að var íslenskt og á séns í Fóstbræður. Karakterinn sem að Jón Gnarr er hreint út sagt byggður á fyrrverandi yfirmanni mínum, sem að er annars besta skinn, en ef allt það ömurlega sem að kom uppúr honum yrði líkt við eitthvað, þá er það þessi karakter. Mjög skemmtilegir þættir.

Reyndar eru þetta ekki fyndnustu íslensku þættirnir sem að eru í gangi í dag, og nei, ég er ekki að tala um Spaugstofuna.

Vörutorg er eitt mesta grín sem að ég hef séð. Ég bara get ekki trúað því að maðurinn sem að færir okkur þetta yndislega sjónvarpsefni sé að meina þetta. Hann er meistari að ná að halda straigth face og bjóða okkur uppá súkkulaðigosbrunna, vélar sem að æfa alla vöðva líkamans og hjálpa okkur að komast í frábært form, FRÁBÆRT FORM, á nokkrum vikum. Hann hlýtur að hafa tapað í einhverju veðmáli eða eitthvað.

"Haha, þú verður að vera með þátt eins og Sjónvarpsmarkaðinn í heilt ár!"

http://www.vorutorg.is - bezt í heimi!

----------------------------------------------------------------------------

Ok að öðru máli.

Ég var að vinna í sumar sem birgðarstjóri á lager Byko í Kjalarvogi í Reykjavík. Ég hlustaði mikið á útvarpið í þessu starfi, í rauninni eingöngu á útvarpsstöðina X-ið 977. Það er kannski ekki besta fréttastöðin eða málefnalegasta útvarpsstöðin en það laumast ýmislegt í gegn.
Í gegnum árin hef ég hlustað á hljómsveitina Smashing Pumpkins með öðru eyranu, ýmislegt gott komið úr því fjósi en líka margt sem að mér líkar ekkert sérstaklega. Í vor gáfu þeir Smashing Pumpkins liðar út nýja skífu sem að bar nafnið "Zeitgeist". Eina vitneskjan sem að ég hafði um þessa plötu er að hún innihélt lag sem að ég met mikils sem heitir "Doomsday Clock". Þegar að ég kemst í tæri við lög sem að eru svona góð eins og þetta lag þá á ég til að leita eftir upplýsingum um hljómsveitina af gömlum vana, án þess að hafa nokkra ástæðu fyrir því nema bara áhugan á því að vita hverjir eru svona miklir snillingar. Ég er ekki mikið fyrir að hlusta á texta í fyrsta skipti sem að ég heyri lög, nema að það sé rapp, en engu að síður er það alltaf laglínan sem að vekur áhuga minn fyrst.
Allavegana, þessi plata Smashing Pumpkins, Zeitgeist, er hápólitísk plata og þótti mér nafnið á henni sérstaklega áhugavert. Mér fannst einhver nasista bragur yfir þessu, sennilega af því að allt þýskt sem að ég sé og heyri í fyrsta sinn tengi ég við nasisma, eins rangt og það nú er.

Zeitgeist er, samkvæmt Wikipedia.org, þýskt orðtak sem þýðir "the spirit of the age". Ég er ekki nógu sleipur í íslensku til þess að þýða þetta beint en þykist þó vita hvað þetta þýðir. Ég komst síðar að því á síðunni torrent.is (eftir að hafa farið í bófa leiðangur að leita að þessari mögnuðu plötu) að það er sjálfstæð bíómynd sem að hefur verið dreyft um netið sem að heitir einmitt þessu ofur þýska nafni, Zeitgeist.

Myndin Zeitgeist er nokkurskonar heimildarmynd um 3 hluti í samfélaginu, aðallega í bandarísku samfélagi, en engu að síður, í hinum vestræna heimi. Þessir hlutir eru: Trú, hryðjuverk og stjórnvöld.

Í myndinni er farið ítarlega í öll þessi málefni og þeim gerð skil og gerð tilraun til þess að sannfæra áhorfendan um að þetta sé allt stórt samsæri gegn íbúum hins vestræna heims.

Já núna hugsa eflaust margir "já ok, samsæri, en eitt ruglið sem að einhver illa uppalinn krakki kom með af því að hann fær ekki nógu mikla athygli heima hjá sér"

En þetta er öðruvísi, þeim tókst að sannfæra mig.

Ég hef átt það til að grípa til trúnnar í gegnum árin og beðið fyrir hinu og þessu, aðallega að fjölskyldunni minni líði vel og ég vinni í lottó, en eftir að hafa séð þessa mynd þá er ég sannfærður um að þetta er bara saga. Falleg saga, en engu að síður fáránlega misnotuð.
Afhverju er árið 2007? Eru 2007 ár síðan að talningar á tíma hófust? Ég hef aldrei pælt í þessu að ráði, fyrr en fyrst núna.

Ég var nývaknaður þegar að annar tvíburaturninn var alelda eftir að flugvél flaug á hann og stóð gapandi fyrir framan sjónvarpið þegar að hinn turninn fékk á sig eitt stykki farþegaþotu og hugsaði "nei andskotinn, nú verður einhver drepinn".
Og þegar að þeir hrundu, þá var mér sagt "já blessaður vertu, hitinn frá flugvélabensíninu hlýtur að hafa brætt burðarbitana og þungninn af turninum hlýtur að kramið þetta allt saman." Þetta gerðist alltof alltof ALLTOF hratt til þess að þetta svokallaða "pancake effect" hafi verið ástæðan. Eins hrundi annars turn, en það var ekki talað eins mikið um það, því að jú, það fór engin flugvél á hann, það kviknaði bara í 2 hæðum og hann hrundi, að sjálfsögðu útaf hitanum.

What?

Það var talað um það þegar að tvíburaturnarnir sálugu voru byggðir að jafnvel þótt að svo ólíklega yrði að flugvél yrði flogið á þá, myndu burðarbitar turnana standast álagið. En í grunni þeirra, MÖRGUM VIKUM EFTIR, var bráðin málmur í pollum, 2000° heitur, sem er 500° heitara en flugvélabensín brennur!

Ok, svo síðasta málið. Stjórnvöld og peningar.

Einn bandaríkjadalur er gerður af seðlabankanum þeirra sem að selur ríkinu hann á 1$ með vöxtum.

...

Ok svo þegar að þarf að borga til baka?

Horfiði bara á myndina: http://tinyurl.com/yv4uxs

Mæli einnig með http://www.TruthMove.org

1 ummæli:

Unknown sagði...

Vei! Þú bjargaðir lífinu mínu, ég hef lengi óskað þess að það kæmi út ný plata með Smashing Pumpkins. Vissi ekki af þessari!