20070412

Árleg skyttuverðlaun myndatökumanna

Ég hef verið að velta þessu fyrir mér í nokkur ár en aldrei tjáð mig neitt um það. Málið er að ég var að vinna þarsíðustu helgi og þar sem að 365 ákváðu að loka fyrir Sirkus fyrir hinn almenna áhorfenda þá var ekkert í sjónvarpinu til að horfa á annað en einhver úrslitaleikur í handbolta kvenna. Ég er ekki mikill íþróttaáhugamaður fyrir, en þetta er ekki alveg my material. Allavegana, eftir leikinn var tekið viðtal við stelpurnar sem að unnu og þær voru rétt að ná andanum og svona, en hvað með það.

Þegar að viðtalið við þær var tekið, eina eða tvær í einu, voru alltaf einhverjir krakkar fyrir aftan þær að hoppa, til að sjást í sjónvarpinu, eða að henda í stelpurnar skraut bréfinu sem að hafði fallið úr loftinu eftir að þær unnu. Ég hef oft verið að velta fyrir mér hvort að það ætti ekki að hafa innbyggðar deyfi pílur í myndavélarnar til þess að skjóta niður krakka gerpin svo að þau hætti þessu rugli. Ef að ég hefði verið þessar stelpur þá hefði ég sennilegast hlaupið í krakkana og brjálast. Ekki misskilja mig, mér finnst börn fín, en ekki svona börn. Ég held líka að það yrði meira til að myndatökumönnum í þjóðfélaginu, þar sem að það væri komið svolítið fútt í þetta. Sæi jafnvel fyrir mér svona árleg skyttuverðlaun myndatökumanna sem að yrðu veitt fyrir hina og þessa flokka, bestu tilþrifin, besta nýtingin, flestir krakkar deyfðir.

Hell, þarna er sjónvarpsefni til þess að horfa á í vinnuni!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sæll kalli eitthvað að fretta af sigriðarstaða hatíðinni? flott siða hja þer annars