Ég komst að þeirri döpru staðreynd að maður er hvergi óhultur gagnvart lygum frá hverjum sem er, og jafnvel hverju sem er. Þannig er mál með vexti að iPodinn minn, sem hefur verið minn besti vinur í rúmlega 2 ár núna, er farinn að ljúga að mér. Hann hefur reyndar verið að ljúga að mér í þónokkurn tíma. Nú ert þú sennilega að hugsa að ég sé búinn að fara í einum of marga Switching tíma og sé hreinlega orðinn veikur á geði. En þannig er það nú ekki. iPodinn minn segir mér það nefnilega, án þess að blikka, að hann sé batteríislaus og biður mig um að tengja sig við rafmagn, í tíma og ótíma. Hann drepur á sér þó hann hafi legið með rafmagnið í æð í heila nótt og segist alveg búinn á því þó svo að batterýis merkið segi til um annað. Ég tók á það ráð hinsvegar í morgun að taka með mér hleðslusnúruna til að plata rafmagnsfíkillinn aðeins. Ég var á leið heim úr ræktinni og þá byrjaði hann með sama vesenið, sagðist ómögulega geta haldið sér í gangi þessar 5 mínútur sem það tekur fyrir mig að labba heim og drap á sér. Ég fór þá í hinn vasann á meðan að hann var meðvitundarlaus og stakk hleðslugaurnum í bossann á honum og ræsti hann aftur. Og viti menn. Hann féll kylliflatur fyrir þessu og spilaði sem aldrei fyrr á leiðinni heim og er sennilega en að í vasanum í úlpunni minni frami í fataskáp. Svona lið sko.
Annars fékk ég bílinn minn aftur í dag eftir að sérfræðingur leit á hann og komst að því að hann var bara að ljúga líka, það þurfti ekki að skipta um neitt nema jú einhverja reim sem að eigandinn var búinn að grilla. Þurfti bara smá bank í fótinn og þetta var klárt.
Ég vona að tækin mín fari að taka sig á, þetta fer að verða þreytandi.
20070220
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
djöfuss aumingi.. þú verður bara að taka það fram við hann að hann á bara 2 veikindadaga í mánuði..
jájá.. minn bíll og sími eru bara að taka sína daga út árið núna.. fékk símann í jólagjöf og hann er bara strax bilaður.. og svo er ég búin að vera bíllaus í að verða 2 vikur!!! vorkenniru mér ekki Kalli:( vorkenndu mér!
Ég er líka alltaf ljúgandi.
Já ég óska hér með eftir nýrri Línu, þessi er óviðgeranleg
Þú verður að fá þér svona fítus eins og í navisjón. "Setja inn nýja Línu"
hahaha! ;)
Skrifa ummæli