Jæja, orðið góður mánuður síðan að ég bloggaði síðast, gott að bæta þetta aðeins.
Það hefur ýmislegt gengið á, búin með tvo áfanga síðan að ég bloggaði síðast, annarsvegar hjá Affí þar sem að við vorum í grafík að gera tréristu og þrykkja því svo á einhversskonar hrísgrjónapappír, gerði eitthvað skemmtilegt þar. Ég hef samt verið að velta fyrir mér að gera aðra síðu hérna á blogger undir myndir og verk sem að ég hef verið að gera, líkt og Frilli félagi gerði með http://f7sketching.blogspot.com/
Við tókum líka áfanga hjá Óla Núma í auglýsingum, þar sem að mér finnst loksins við hafa komið almennilega inná námið í fyrsta skiptið á þessari önn, amk eins greinilega og á er kosið. Svo byrjuðum við á lokaverkefninu síðastliðin mánudag. Við eigum að gera einhverskonar samtök eða félag sem fjallar um málefni þjófélagsins í dag, sbr. Framtíðarlandið.
Ég ákvað að taka fyrir femínista. Þá er ég að tala um hina raunverulegu femínista, þá sem verðskulda að vera titlaðir sem slíkir, ekki hina svokölluðu feminasista. Ég hef ákveðið að kalla þetta félag Samtök Raunfemínista á Íslandi, RaunFemin. Ég styð hin raunverulegu málefni sem femínistar berjast fyrir, bæði launalegu- og samfélagslegu jafnrétti, en er orðinn býsna þreyttur á þessari klámumræðu sem hefur verið í gangi í fjöldamörg ár og var hvað háværust um daginn.
Annars er ég kannski að fara að vinna á framandi stöðum, vonum að það gangi eftir. Læt ykkur vita um leið og það gerist.
Síðasta sumarið sem ómenntaður maður, wooh!
P.S.
Gott að fara að taka myndir af verkunum sínum og skella inn á síðu, held ég noti daginn í það bara.
20070322
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli