20070217

Bjór og pönnukökur

Ég skellti mér til Hannesar í gærkvöldi í bjór og pönnukökur þar sem rætt var um hlekkjaða úldna manninn í herberginu hans Palla bróðir Hannesar og fleira hressandi.
Adam kom norður í gær líka og kíkti á okkur ásamt Gunna og Stebba. Við horfðum á True Romance, býsna góð ræma þar á ferð. Svo þegar að hún var búinn skipti Hannes yfir á Sirkus þar sem að var mynd sem að heitir Ett hål i mitt hjärta. Það er víst eitthvað þema í gangi hjá þeim núna á föstudagskvöldum þar sem að þeir sýna semi-klámmyndir klukkan 23:00 og þetta var annarföstudagurinn af þeirri "hefð". Áhugaverð mynd reyndar, væri til í að horfa á hana með samhengi.

Annars hefur ekki mikið verið að ske svo sem, er að ná mér á strik aftur eftir frekar slappa byrjun á þessari önn, búið að vera hálf lélegt ár að mér finnst, veit að ég get betur en þetta. Erum í grafík áfanga að gera tréristur og þrykkja því, kem til með að taka myndir af því þegar að áfanginn er búinn og setja það hingað inn. Minnir svolítið á stensla, bara erfiðara.

Við erum svo að fara suður núna næsta fimmtudag, á afmælisdaginn minn, og verðum fram á sunnudag. Ég fæ að gista hjá Matta og Hófí, og kem til með að vera mest allan tíman hjá þeim, en ætla samt að reyna að kíkja á auglýsingastofurnar og CCP, taka kannski eitt kvöld með Kristjáni Sveins og líka krökkunum í skólanum, alltaf gaman að djamma með þessu fólki.

En já, einn áfangi í viðbót og svo lokaverkefni, þá er að duga eða drepast.

nossinyer / caid

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jahá.. gott að heyra að þú ert að ná þér uppúr skólalægðinni :)