20080211

PC, Hárkollupartý, After Effects og Dub Step.

Jæja ég ákvað eftir fjölda áskoranna að setjast niður og skrifa smá blogg, enda orðið langt síðan og margir orðnir spenntir yfir nýjungum úr höndum meistarans.

Ég veit eiginlega hvorki hvað ég á að skrifa um, eða hvar ég á að byrja. Þannig er mál með vexti að það hefur ýmislegt gerst undanfarið en ekkert sem að mér hefur fundið verðugt bloggefni eitt og sér þannig að það er sennilega bara best að hafa smá samantekt af því helsta og birtingavænasta.

Ég byrjaði nýja árið á því að kaupa mér nýja tölvu, PC tölvu í þokkabót. Það var gríðarlega erfið fæðing og tók tæpan mánuð að fá hana fullkláraða í hús. Allskyns vesen í kringum minni, móðurborð og skjákort, en þetta er allt hérna núna og er ég hæst ánægður með útkomuna. Hún stendur sig hörku vel í öllu sem ég hef lagt fyrir hana hingað til og vona ég að hún haldi því áfram í dágóðan tíma þar sem að hún kostaði þó nokkuð.
Nú hafa margir spurt mig afhverju í ósköpunum ég færði mig yfir til erkifjanda Apple, Microsoft, og er svarið við afar einfalt; Ef ég hefði keypt mér Apple tölvu sem að samsvarar þessari sem ég á núna í afli og getu hefði hún kostað eins og lítill notaður bíll, um hálfa milljón. Því miður eru Apple tölvur mun dýrari en PC tölvur og sama hvað auglýsingarnar frá Apple reyna að drepa niður "kúlið" hjá PC þá er það bara staðreynd að PC tölvurnar geta gert nákvæmlega sömu hluti og Maccarnir, og meira til. Nú hugsa sjálfsagt margir, þar á meðal móðir mín (hæ mamma!); "Þú hefur nú bara keypt þér þetta til að geta verið í tölvuleikjum". Það er ekki satt, þrátt fyrir að ég hafi mikla unun að því að spila leiki með vinum mínum. Tölvur sem að geta keyrt nýlega og nýjustu leikina vel, geta keyrt allt annað vel líka. Ég lít þessvegna á leikjagetu þessarar vélar bara sem yndislegan bónus þegar að manni fer að leiðast í frítímum.

Um síðustu helgi, hélt vinkona mín og skólafélagi, Aldís, uppá afmælið sitt heim hjá sér og bauð öllum skólanum. Ég hef farið í 2 partý til Aldísar í gegnum tíðina, sem teljast officially til partýa, og ég verð að segja að ég læt mig ekki vanta í það næsta, hvenær sem það svo verður. Ég og Frilli byrjuðum heima hjá mér yfir nokkrum bjórum og Team Fortress 2 spili (sem er btw einn mesti snilldar leikur sem ég hef rekist á lengi) og lögðum af stað til Aldísar um 22:30 eftir að hafa fengið nokkur hótunar sms frá Aldísi að allir væru á leið í bæinn o.s.frv., svona ómissandi erum við. Svo þegar á staðin var komið tók á móti okkur mis ölvað fólk sem lét eins og við hefðum bjargað lífi þess, slík var hamingjan. Við skelltum okkur inn þar sem að troðfull íbúðin af fólki í skemmtanaham tók á móti okkur opnum örmum. Ég get eiginlega ekki farið út í details hérna hvað gekk á í þessu partýi þar sem að það var bæði margt, og annað sem að ég sé mér ekki fært um að segja hér, þar sem að það er fólk sem að les þetta sem að ég kæri mig ekki mikið um að viti hvað gerðist. Og ef að þið ætlið að vera eitthvað sniðug og reyna að troða því inn hvað gerðist þá megið þið vita að ég þarf að samþykkja öll comment við bloggið mitt og comment með einhverjum óviðeigandi upplýsingum fá ekki samþykki mitt.

:)

Allavegana, þetta var ótrúlega skemmtilegt teiti og fóru allir mikinn, dansatriði, hlaupskot, bolla, fleiri hundruð myndatökur með kjánalegum pósum og mér sérstaklega minnistætt, hárkollu flipp. Allow me to demonstrate:



Já myndirnar af þessari hárkollu á hinum ýmsu aðilum, í margvíslegum stellingum og á ótrúlegustu stöðum fóru mikinn mánudaginn eftir í skólanum.

Við erum núna í áfanga hjá Rafni Inga að læra á After Effects og Flash, ef tími gefst til. Við gerðum mikið af basic æfingum fyrstu vikuna, eitthvað sem kom sér vel fyrir okkur á 3ja árinu þar sem að hann kenndi okkur svipaða hluti þegar að við vorum á 1sta ári. Við fórum svo út í myndbandsgerð í annari viku þar sem að hver og einn átti að velja sér íslenska neysluvöru, draga svo úr potti (sem var húfan hans Rafns Inga) markaðshópa sem að við áttum svo að kynna vöruna fyrir. Markaðshóparnir voru á ýmsa vegu, t.d. 6-9 ára, 10-14 ára, bílaáhugamenn, íþróttafólk, útivistarfólk o.s.frv.
Sjálfur valdi ég Skyr, og dró ég úr húfunni, tölvuleikjaáhugamenn, ótrúlegt en satt. Ég blandaði því saman myndklippum úr Team Fortress 2, bæði tilbúnum og svo sem að ég gerði sjálfur og náði að gera ágætis 40 sekúndna auglýsingu um Skyr fyrir tölvuleikjaáhugamenn og hvernig þeir geta orðið betri, bara með því að fá sér Skyr. Hljómar rökrétt, ekki satt?

3ja vika í áfanganum hefst svo á morgun og verðum við að vinna með upptekin video, þar sem að við komum til með að vinna með svokallaða GreenScreen tækni (sama og notuð er í Sin City t.d.). Síðasta vikan í þessum áfanga er enþá óráðin, en það verður einnig mín síðasta vika í áfanga í skólanum, en þá hefst lokaverkefnið, sem spannar yfir tæplega 3 mánuði.
Ég hef ákveðið að leggja fram tillögu að myndbandi við lagið Ninja's Step sem að samið var að ungum strák úr borginni. Þetta er í svokölluðum Dub Step stíl, sem er einskonar Drum 'n Bass, nema bara með hægum þungum takti. Mér datt svo í hug að setja söng Herdísar frænku minnar inní þetta lag en það kemur allt í ljós þegar að nær dregur. Nú er bara að vona að lokaverkefnið verið frjálst, sem að ég tel mig nokkuð vissan um að verði.

Jæja þarna hafiði eitthvað smá um hvað hefur verið að gerast í mínu lífi það sem af er árinu. Ég ætla ekki að koma með þessa akademísku yfirlýsingu um að ég ætla að vera duglegri við að blogga, þar sem að það gengur aldrei upp hjá neinum og maður fær bara samvisku bit yfir einhverju sem að maður þarf ekkert nauðsynlega að gera.

Ég ræð mér sjálf, þannig að ég blogga þegar að ég vil!

:)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Glæst!! Hlakka til þegar þú verður búinn með skólann. Þá getum við farið að einbeita okkur að máli málanna, "Kjalarvogur the musical." Farðu svo að koma þér í bæinn. Ég er með leik sem við getum farið í... Ehemm!!

Nafnlaus sagði...

Hæhæ. Alltaf gaman að lesa bloggið þitt! Takk fyrir að hrósa partínu svona, þetta hefði ekki verið eins skemmtilegt án þin skal ég segja þér. Vá hvað þetta var CRAZY!!!! Ég verð að fara að plana annað partý mar! ;) Aldís

Nafnlaus sagði...

Hæ drengur, mín er komin með Blogg:P Vonandi ferðu að kíkja á djammið með okkur aftur!


http://hertha.blogcentral.is/

Nafnlaus sagði...

ógislega gaman í þessu partý! alltaf skemmtilegt að lesa bloggið þitt! Vonandi fer maður samt að sjá í smettið á þér...