20071215

Fyrirlestrar, hryðjuverkablogg & haters

Kominn tími á smá aftöppun.

Ég er kominn í jólafrí. Fyrirlestrar vikan var að klárast og dagur 3ja ársins gekk mjög vel. Ég er ánægður með fyrirlesturinn minn og ég vona að hann hafi komið áhorfendum í skilning um hvað Rotoscope sé. Nú tekur við afslöppun 101 fram að 7 janúar, reyndar með smá tiltekt, vott af jólastressi og örlítið af vinnu á Shell.

Ég var að vafra um á huga.is núna í morgun og rakst á þráð um konu sem lenti í Homeland Security á leið sinni til Bandaríkjanna, landi hinn frjálsu og hugrökku.

Þeir sem vilja geta lesið sögu hennar hér: http://erla1001.blog.is/blog/erla1001/entry/388660/

Ef að þið þekkið mig þá vitið þið að ég hef töluverða andstyggð á Bandaríkjunum og hegðun þeirra eftir að þeir framkvæmdu árasirnar 11. september 2001 á sjálfa sig. Saga konunar, sem heitir Erla, er ekki sú fyrsta sem að ég heyri, og hefur meira að segja verið gerð kvikmynd um slíkt athæfi, reyndar mun alvarlegra, en engu að síður á sömu forsendum, og heitir hún Rendition. Þar er sýnt hvernig Bandaríkin, undir formerkjum Homeland Security, brjóta mannréttindi trekk í trekk, flytja fólk til annara landa eða bara af Bandarískri jörð, og pynta það, stundum til dauða.

Það er tvennt í kringum þetta mál sem að fer virkilega í taugarnar á mér. Í fyrsta lagi fólkið sem er með völdin í þessu landi og er oftar en ekki þekkt sem ofurbloggarar láta ekki sjá sig á commenta lista þessarar færslu Erlu, sem nálgast 500 svör nú þegar 4 dagar eru liðnir frá innsetningu hennar.

Hversu mörg dæmi þurfa að berast þangað til að einhver þjóð ákveður að taka til sinna mála gegn Bandaríkjunum? Og það er engin afsökun að segja: "Það er enginn sem á roð í Bandaríkin, þeir er með lang stærst herinn". Ef að samstaða næst þá er vissulega hægt að segja "Hingað og ekki lengra". Ég trúi því að stjórn Bandaríkjanna hafi verið á bakvið 9/11 árásirnar á sjálfa sig eftir að hafa kynnt mér aðdraganda þeirra og ástæður hversvegna þeir ættu að gera það.

Það sem fer aftur á móti meira í taugarnar á mér er fólk sem að kemur inn á svona málefni með ótrúlega heimskuleg comment, skrifar ekki undir með fullu nafni og drullar yfir þá sem að koma að málinu. Óupplýstir aumingjar sem að kallaðir eru á alþjóðatungu 'haters'. Alveg er það með ólíkindum hvað þeir henda fram fyrir allra augum hvað þeir eru öfundsjúkir og illa upp aldir.

Ég hef ekki mikið meira um þetta að segja, né annað þannig að ég segi þetta gott.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Kalli. Gaman að lesa bloggið þitt. minni þig líka á mitt. www.aldismaria.boggar.is ef þú munt sakna mín um jólin, hahah. Ég er allavega farin að sakna ykkar þarna fyrir norðan, þó ég kom hingað í gær. Sjáumst á næsta ári og já: Gleðileg jól!

kv, Aldís

Nafnlaus sagði...

fyrilesturinn þinn var frábær! vel gerður og einstaklega vel fluttur.. þú færð eitt feitt og stórt og gott klapp frá mér:)

Hafðu það gott elsku Kalli minn...