20070118

Switching

Ég fór í ræktina áðan og ætlaði bara að taka mína venjulegu rútínu og taka 5 mín í 3 tækjum, programmið sem að ég ákvað til að koma mér af stað fyrstu vikurnar. Síðan að ég ákvað þetta program hefur runnið mikið vatn til sjávar og ég hefði aldrei drullast í tímana sem að ég ætlaði í í fyrsta lagi hefði ekki verið fyrir að Gulli, kærasti Stínu frænku, hefði ýtt á mig að mæta í tímann.

Þessir tímar eru kallaðir Switching. Þetta lýtur fyrst út fyrir að vera hugmynd frá Satan sjálfum, þar sem að það eru 40 stöðvar til að æfa í og skiptist fólk á stöðvum (hence switching). Og svo gengur það í hringi. Ég er býsna sáttur með að mér tókst næstum því að halda út einn tíma, en ég er enþá, núna einum og hálfum tíma síðar dauðþreyttur eftir herlegheitin. Þetta er eitthvað sem að ég ætla að reyna að mæta í í hvert skipti, tvisvar í viku.

Annars var það að koma upp á daginn að það verður skóla partý á næstunni og höfum við verið að spjalla aðeins um það. Verður hressandi að komast í svoleiðis aftur eftir frekar slappt félagslíf fram að þessu.

2 ummæli:

aldis sagði...

Hæ Kalli! mega partý næstu helgi, hlakka til! jee! Switching er algjört æði.

Nafnlaus sagði...

hey og hvar myndiru halda að þessir switching tímar séu? og klukkan hvað? ég fæ nú bara strengi á að lesa þetta.. var að byrja aftur hjá einkaþjálfaranum.. og segi bara eins og einn gaurinn í kf nörd.. ég fékk strengi frá tá og uppí eyra þegar ég byrjaði aftur heh
en vi ses Kalli minn:)