20070119

Photoshoot

Ég fór í bankann í dag útaf einhverjum FIT færslum, alveg merkilegt hvað bankinn getur smurt á nokkrar færslur. Svo fékk ég líka Intrum bréf útaf einhverju sem að við vorum löngu búnir að sverja af okkur niðri á KEA, best að kíkja þangað eftir helgi.

Ég hitti Herdísi svo eftir skóla og við kíktum á Bláu könnuna og ræddum hvar og hvernig við gætum tekið myndir bráðlega. Höfum verið að pæla dálítið í því en aldrei gert neitt í því. Að sjálfsögðu þegar að konur eru með för verður að kíkja í búðir og var það það sem að tók mest allan tíman. Ágætt samt að gera eitthvað annað en að hanga einn svona til tilbreytingar.

Ég læt fylgja með tvær myndir af krúttinu.



1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

o krúttið ég.